Sjóðfélagavefur er gagnvirkur vefur þar sem sjóðfélagi skráir sig inn í öruggt umhverfi þar sem hann getur skoðað stöðu sína gagnvart sjóðnum, flett upp iðgjaldasögu, greiðslusögu, afborganasögu og stöðu lána. Einnig hefur sjóðfélagi aðgang að reiknivélum til þess að reikna greiðslubyrði lána og áunnin og áætluð lífeyrisréttindi.
Helstu þættir eru:
• Réttindayfirlit (hver eru réttindin innan hvers sjóðs?)
• Aðrir sjóðir (í hvaða aðra lífeyrissjóði hefur sjóðfélagi greitt og hvenær?)
• Iðgjaldasaga (réttindi og iðgjöld)
• Sundurliðun iðgjalda
• Lífeyrisgreiðslusaga
• Lífeyrisgreiðslumánuðir
• Sundurliðun lífeyris
• Staðgreiðsla skatta
• Útborgun lífeyris (banki, reikningur)
• Sameignarreiknivél
• Séreignarreiknivél
• Lánareiknivél
• Graf (áætlaðar greiðslur úr sér- og sameignarsjóði)
• Lán sem sjóðfélagi er með hjá sjóðnum (ath m.v. að sjóður noti verðbréfahluta Jóakims)
• Greiðslur af lánum sem sjóðfélagi hefur greitt.
Búið hefur verið til móttökukerfi sem byggir á vefþjónustu fyrir rafræn skil úr launakerfum með XML skeytum fyrir Landsamtök lífeyrissjóða sem verður notað af öllum lífeyrissjóðum innan samtakanna.
Búið er að setja upp svokallað OLAP viðmót á upplýsingar úr Jóakim. OLAP (On-Line Analytical Processing) byggist á því að setja gögn fram sem margvíða teninga, þar sem hver vídd teningsins svarar til ákveðins greiningar (flokkunar/sundurliðunar) þáttar í upplýsingum stofnunar. Til að skoða gögn í teningum eru notuð sérhæfð OLAP verkfæri, sem eiga að setja gögnin fram á einfaldan hátt með grafísku viðmóti. Söluaðilar Cognos hafa síðan búið til teninga til að skoða gögn úr iðgjaldakerfi, félagakerfi og greiðslukerfi.