Launagreiðendavefur er veflausn fyrir lífeyrissjóði og stéttarfélög sem nota Jóakim kerfið og innheimta iðgjöld frá launagreiðendum.
Launagreiðendur geta skoðað stöðu sína gagnvart innheimtuaðilum, flett upp sinni sögu og skráð eða sent nýjar skilagreinar úr launakerfum. Um er að ræða öruggt umhverfi sem tryggir að notendur vinna aðeins með eigin gögn.
Helstu þættir eru:
• Yfirlit skilagreina (staða skilagreina)
• Stöðulisti (allar skuldir og inneignir eftir sjóðum)
• Fylgiskjöl (sundurliðun á skilagreinum)
• Skrá skilagreinar (skrá inn nýja skilagrein)
• Senda skrár (skilagreinar úr launakerfum)
• Innsendingar (skoða innsendar skilagreinar)